
Fyrir verktaka
Tækja- og verkfærastýring fyrir verktaka
Tólspor gefur verktakanum fulla yfirsýn yfir verkfæri, vélar og tæki á öllum verkstöðum — hvar þau eru, hver er með þau og hvað þau kosta. Rauntíma GPS-staðsetning á dýrari tækjum og tímaskráning starfsmanna á hvert verk, með beinni tengingu við helstu bókhaldskerfi.
Ávinningur
Hvað skilar Tólspor verktakanum
Minnka kostnað
Betri yfirsýn yfir notkun og endingu búnaðar dregur úr óþarfa kostnaði og endurkaupum á týndum tækjum.
Auka tekjur
Möguleiki á dýnamísku verkfæragjaldi og útleigu búnaðar opnar nýjar tekjuleiðir á hvert verk.
Minnka sóun
Aukin skilvirkni innan vinnustaðar nýtir búnað og tíma starfsmanna betur.
Eiginleikar
Allt utanumhald verktakans á einum stað
Tólspor sameinar skráningu, staðsetningu, verkfæragjald og notkunarsögu búnaðar ásamt tímaskráningu starfsmanna í einfalt, áreiðanlegt kerfi sem gefur líka yfirsýn yfir virði tækjaflotans.
Tækja- og verkfæraskrá
Heildaryfirsýn yfir öll verkfæri, vélar og tæki verktakans á einum stað — tegund, ástand, virði og eignarhald.
Yfirsýn yfir marga verkstaði
Veistu hvar hvert tæki er og á hvaða verkstað það er hverju sinni — dýr tæki færast skipulega milli verka án þess að týnast.
Notkunarsaga og tímaskráning
Rekjanleg saga um notkun búnaðar og tímaskráning starfsmanna á hvert verk — grunnur að réttri kostnaðargreiningu og verkfæragjaldi.
Beintenging kerfa
Samþætt við verkbeiðna-, kostnaðar- og tímaskráningarkerfin sem verktakafyrirtækið notar nú þegar.
Skjámyndir
Tólspor í notkun
Hannað fyrir bæði borðtölvu og síma — sama yfirsýn yfir búnaðinn hvar sem þú ert.



Samþættingar
Tengist kerfunum sem þið notið nú þegar
Tólspor talar beint við vinsælustu verkbeiðna-, kostnaðar- og tímaskráningarkerfi landsins, svo gögnin flæða óaðfinnanlega milli kerfa án tvíverknaðar.







„Einföld kerfi þarfnast minna viðhalds og eru áreiðanlegri bæði í notkun og rekstri.“
Tólspor er byggt á sömu meginreglum — einfaldleika, áreiðanleika og skilvirkni.
Viltu sjá Tólspor fyrir verktaka?
Hafðu samband og við bókum kynningu þar sem við sýnum hvernig Tólspor heldur utan um tækjaflota verktakafyrirtækisins á öllum verkstöðum.
Hafa samband