
Utanumhald um samnýttan búnað
Tólspor er eignastýringarhugbúnaður fyrir verkfæri og annan búnað — heldur utan um staðsetningu og notkunarsögu, og nú einnig rauntíma GPS-staðsetningar og tímaskráningu, með beinni tengingu við helstu bókhaldskerfi. Hentar verktökum af öllum stærðum.
Ávinningur
Hvað skilar Tólspor rekstrinum
30×
Kostnaðar-ábata greining sýnir allt að 30× árlegan ábata fyrir viðskiptavini okkar.
Minnka kostnað
Betri yfirsýn yfir notkun og endingu búnaðar dregur úr óþarfa kostnaði.
Auka tekjur
Möguleiki á útleigu búnaðar og dýnamísku verkfæragjaldi opnar nýjar tekjuleiðir.
Minnka sóun
Aukin skilvirkni innan vinnustaðar nýtir búnað og tíma betur.
Eiginleikar
Allt utanumhaldið á einum stað
Tólspor sameinar skráningu, staðsetningu, verkfæragjald og notkunarsögu búnaðar ásamt tímaskráningu í einfalt, áreiðanlegt kerfi sem einnig gefur frábæra yfirsýn yfir virði lagers og ákveðinni tækja.
Búnaðarskrá
Heildaryfirsýn yfir allan samnýttan búnað á einum stað — tegund, ástand og eignarhald hvers tækis.
Staðsetning
Veistu hvar hvert tæki er hverju sinni og hver er með það í höndunum — engin tæki týnast lengur.
Notkunarsaga
Rekjanleg saga um notkun og endingu búnaðar sem styður ákvarðanir um viðhald og endurnýjun.
Beintenging kerfa
Samþætt við verkbeiðna-, kostnaðar- og tímaskráningarkerfin sem fyrirtækið notar nú þegar.
Nýjar viðbætur
NýttNýtt í Tólspor
Tvær öflugar viðbætur sem auka yfirsýn og skilvirkni enn frekar — rauntíma GPS-staðsetningar og tímaskráning beint í kerfinu.
GPS rauntímastaðsetningar
NýttFylgstu með staðsetningu dýrari tækja í rauntíma á korti — og sjáðu alla ferðasöguna með tímastimplum. Verðmætasti búnaðurinn týnist aldrei aftur.
- Rauntímakort yfir staðsetningu tækja
- Full ferðasaga með tímastimplum og hnitum
- Sniðið að dýrari og verðmætari búnaði
Tímaskráning
NýttStarfsmenn stimpla sig inn og út á verk beint í símanum. Yfirlit, leiðréttingar og yfirvinna á einum stað — með samættingu við helstu bókhaldskerfi.
- Stimpla inn og út á verk úr símanum
- Yfirlit, leiðréttingar og yfirvinnuútreikningur
- Samætting við helstu bókhaldskerfi

Skjámyndir
Tólspor í notkun
Hannað fyrir bæði borðtölvu og síma — sama yfirsýn yfir búnaðinn hvar sem þú ert.



Samþættingar
Tengist kerfunum sem þið notið nú þegar
Tólspor talar beint við vinsælustu verkbeiðna-, kostnaðar- og tímaskráningarkerfi landsins, svo gögnin flæða óaðfinnanlega milli kerfa án tvíverknaðar.







„Einföld kerfi þarfnast minna viðhalds og eru áreiðanlegri bæði í notkun og rekstri.“
Tólspor er byggt á sömu meginreglum — einfaldleika, áreiðanleika og skilvirkni.
Viltu sjá Tólspor í verki?
Hafðu samband og við bókum kynningu þar sem við sýnum hvernig Tólspor heldur utan um búnaðinn ykkar.
Hafa samband