
Fyrir rafvirkja
Verkfæraskráning fyrir rafvirkja
Tólspor heldur utan um öll samnýtt verkfæri og mælitæki rafvirkjans — hvar þau eru, hver er með þau og hvernig þau eru notuð. Rauntíma GPS-staðsetning á dýrari tækjum og tímaskráning á hvert verk, með beinni tengingu við helstu bókhaldskerfi.
Ávinningur
Hvað skilar Tólspor rafvirkjanum
Minnka kostnað
Betri yfirsýn yfir notkun og endingu búnaðar dregur úr óþarfa kostnaði og endurkaupum á týndum tækjum.
Auka tekjur
Möguleiki á dýnamísku verkfæragjaldi og útleigu búnaðar opnar nýjar tekjuleiðir á hvert verk.
Minnka sóun
Aukin skilvirkni innan vinnustaðar nýtir búnað og tíma starfsmanna betur.
Eiginleikar
Allt utanumhald rafvirkjans á einum stað
Tólspor sameinar skráningu, staðsetningu, verkfæragjald og notkunarsögu mælitækja og verkfæra ásamt tímaskráningu í einfalt, áreiðanlegt kerfi.
Búnaðarskrá rafvirkjans
Heildaryfirsýn yfir mælitæki, borvélar, kjarnabora og annan samnýttan búnað — tegund, ástand og eignarhald hvers tækis.
Hver er með tækið?
Veistu hvar hvert tæki er og hver hefur það á verkstað hverju sinni — dýr mælitæki og verkfæri týnast ekki lengur milli verka.
Notkunarsaga og viðhald
Rekjanleg saga um notkun, kvörðun og endingu tækja sem styður ákvarðanir um viðhald og endurnýjun.
Beintenging kerfa
Samþætt við verkbeiðna-, kostnaðar- og tímaskráningarkerfin sem rafvirkjafyrirtækið notar nú þegar.
Skjámyndir
Tólspor í notkun
Hannað fyrir bæði borðtölvu og síma — sama yfirsýn yfir búnaðinn hvar sem þú ert.



Samþættingar
Tengist kerfunum sem þið notið nú þegar
Tólspor talar beint við vinsælustu verkbeiðna-, kostnaðar- og tímaskráningarkerfi landsins, svo gögnin flæða óaðfinnanlega milli kerfa án tvíverknaðar.







„Einföld kerfi þarfnast minna viðhalds og eru áreiðanlegri bæði í notkun og rekstri.“
Tólspor er byggt á sömu meginreglum — einfaldleika, áreiðanleika og skilvirkni.
Viltu sjá Tólspor fyrir rafvirkja?
Hafðu samband og við bókum kynningu þar sem við sýnum hvernig Tólspor heldur utan um verkfæri og mælitæki rafvirkjafyrirtækisins.
Hafa samband