
Fyrir golfvelli
Hugbúnaður fyrir golfvelli
Golfspor sameinar veður og vaxtargráður (GDD), vallarkort með GPS, verkskipulag starfsmanna og tækjaskrá vallarins í eitt kerfi — sniðið að daglegum rekstri golfvalla, í tölvunni og úti á velli í símanum.
Ávinningur
Hvað skilar Golfspor vellinum
Heilbrigðari völlur
Rétt tímasett áburðargjöf og vöktun á vaxtargráðum heldur flötum og brautum í toppstandi allt tímabilið.
Skilvirkari rekstur
Skýrt verkskipulag og rútínur nýta vinnutíma vallarstarfsfólks betur og engin verk gleymast.
Lægri kostnaður
Tímanlegt viðhald og nákvæm kostnaðarskráning dregur úr óvæntum bilunum og óþarfa útgjöldum.
Eiginleikar
Allur völlurinn á einum stað
Golfspor byggir á sömu áreiðanlegu undirstöðu og Tólspor, en er sérsniðið að daglegum rekstri golfvalla — frá vöktun á vöxt og veðri yfir í verkskipulag, vallarkort og tækjaskrá í einu kerfi.
Veður & vaxtargráður (GDD)
Fylgstu með veðri, hita og uppsöfnuðum vaxtargráðum (GDD) og fáðu áminningu þegar tímabært er að bera á, t.d. Primo Maxx, á réttum tímapunkti.
Vallarkort með GPS
Gervihnattamynd af vellinum með GPS-staðsettum aðgerðum og myndum. Sjáðu nákvæmlega hvar verk bíða — frá brotnum staur upp í bilað vökvunarkerfi.
Yfirlit allra holna
Hola fyrir holu yfirsýn yfir ástand vallarins, m.a. stimpmælingar (green speed), svo þú sérð strax hvar þarf að grípa inn í.
Skipulag & rútínur
Skipulagðu verk starfsmanna eftir degi, viku eða mánuði, búðu til endurteknar rútínur og úthlutaðu aðgerðum með einum smelli.
Tækjaskrá & tímaskráning
Heildaryfirsýn yfir sláttuvélar, kerrur og vallarbúnað ásamt notkun, viðhaldi og tímaskráningu starfsmanna á verk.
Beintenging kerfa
Samþætt við verkbeiðna-, kostnaðar- og tímaskráningarkerfin sem völlurinn notar nú þegar.
Skjámyndir
Golfspor í notkun
Hannað fyrir bæði borðtölvu og síma — full yfirsýn yfir veður, vöxt, vallarkort og verkskipulag, hvort sem þú ert á skrifstofunni eða úti á velli.






Viðskiptavinir
Golfvellir sem treysta á Golfspor
Golfvellir og klúbbar um land allt nýta Golfspor til að halda utan um rekstur vallarins.



Viltu sjá Golfspor í verki?
Hafðu samband og við bókum kynningu þar sem við sýnum hvernig Golfspor heldur utan um rekstur vallarins ykkar.
Hafa samband