Til baka

Fréttir

Tólspor á Verk og vit 2026

19.–22. mars 2026Laugardalshöll, Reykjavík
Teymi Rún Solutions á bás Tólspor á Verk og vit 2026
Teymið okkar á Tólspor-básnum á Verk og vit 2026.

Við hjá Rún Solutions tókum þátt í Verk og vit, stærstu sýningu landsins fyrir byggingariðnað, mannvirkjagerð og skipulagsmál. Sýningin var haldin í sjöunda sinn dagana 19. til 22. mars 2026 í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal, þar sem verktakar úr öllum áttum koma saman.

Á básnum okkar kynntum við Tólspor, kerfið sem heldur utan um samnýttan búnað á vinnustöðum. Kerfið sýnir hvar tólin eru, hver er með þau og hvernig þau eru notuð. Það minnkar kostnað, minnkar tímaeyðslu og hjálpar til við tekjumyndun (verkfæragjald). Það var frábært að hitta fagfólk úr geiranum augliti til auglitis, sýna kerfið í beinni og heyra hvaða áskoranir fólk er að glíma við í daglegum rekstri.

Viðtökurnar fóru fram úr væntingum. Fjölmargir litu við, prófuðu appið og ræddu hvernig betri yfirsýn yfir tæki og búnað getur fækkað hringingum, dregið úr týndum búnaði og sparað verkstjórum dýrmætan tíma. Samtölin staðfestu það sem við trúum á: einfaldar og áreiðanlegar lausnir sem létta undir með fólki á gólfinu.

Takk fyrir öll góðu samtölin og heimsóknirnar á básinn. Það var ómetanlegt að fá að hitta ykkur. Við hlökkum nú þegar til þess sem er framundan og að halda áfram að þróa Tólspor með ykkar þarfir að leiðarljósi.

Viltu sjá Tólspor í verki?

Náðu betri yfirsýn yfir tækin þín. Hafðu samband og við sýnum þér hvernig Tólspor virkar.

Rún Solutions

Rún Solutions

Stafróf sköpunar

Sérsmíðaður hugbúnaður og ráðgjöf — einfaldar, áreiðanlegar og skilvirkar lausnir.

Fylgstu með

© 2026 Rún Solutions. Allur réttur áskilinn.