
Viðskiptavinir
Íslenskir Rafverktakar: fyrsti viðskiptavinur Tólspor

Íslenskir Rafverktakar voru fyrsti viðskiptavinur Tólspor. Sem rafverktaki með stóran hóp starfsmanna og fjölda verkfæra og mælitækja á mörgum verkstöðum þekktu þeir vel áskorunina sem Tólspor er hannað til að leysa: að vita hvar hvert tæki er og hver er með það hverju sinni.
Sem fyrsti notandi kerfisins áttu Íslenskir Rafverktakar stóran þátt í að móta Tólspor í daglegri notkun. Endurgjöf þeirra hjálpaði okkur að einfalda kerfið og gera það áreiðanlegra fyrir alla sem á eftir komu.
„Gott og notendavænt kerfi sem heldur vel utan um verkfærin okkar! Vandamál með týnd verkfæri svo gott sem úr sögunni. Starfsmenn eru ánægðir með að geta gengið beint að hlutunum, mikill tímasparnaður. Auknar tekjur vegna kostnaðarskráningar mun hærri en ég þorði að vona. Þetta er kerfi sem við hefðum viljað taka upp miklu fyrr.“
Fyrir okkur hjá Rún Solutions er samstarfið við Íslenska Rafverktaka sérstakt. Það sýnir hvernig einfaldar og áreiðanlegar lausnir, mótaðar með notendum frá fyrsta degi, skila sér beint í rekstrinum.
Viltu sjá Tólspor í verki?
Náðu betri yfirsýn yfir verkfærin þín eins og Íslenskir Rafverktakar. Hafðu samband og við sýnum þér hvernig Tólspor virkar.