Til baka í Fréttir
HeiðGuð Byggir

Viðskiptavinir

HeiðGuð Byggir heldur utan um verkfærin með Tólspor

6. maí 2026Akureyri
Tólspor: yfirlit yfir verkfæri
Tólspor gefur HeiðGuð Byggir yfirsýn yfir öll verkfæri fyrirtækisins á einum stað.

HeiðGuð Byggir ehf. er húsasmíðameistarafyrirtæki á Akureyri með yfir tíu ára reynslu af nýbyggingum og viðhaldi húsa við íslenskar aðstæður. Fyrirtækið tekur að sér verkefni á öllum sviðum greinarinnar, allt frá nýbyggingum og klæðningum yfir í innréttingar og verkstjórn, og treystir á fjölbreyttan verkfæraflota í daglegum rekstri.

Þegar mörg verk eru í gangi samtímis og verkfæri flakka á milli manna og verkstaða getur reynst snúið að vita hvar hlutirnir eru hverju sinni. Þar kemur Tólspor inn: kerfið heldur utan um öll verkfæri fyrirtækisins á einum stað, sýnir hvar þau eru og hver er með þau, og gerir kostnaðarskráningu sem beintengist einstökum verkum.

Útkoman er einföld. Færri verkfæri týnast, starfsmenn ganga beint að búnaðinum og verkstjórar losna við óþarfa hringingar. Kostnaðarskráningin á hvert verk opnar auk þess á tekjur sem áður fóru forgörðum.

„Frábært kerfi sem heldur utan um öll okkar verkfæri. Kerfi er að skila okkur auknum tekjum með því að leifa kostnaðarskráningu sem beintengist verkum. Verkfærin finnast ef þú glatar þeim eða gleymir á vinnustað. Greiðari aðgangur að verkfærum fyrir starfsmenn. Minnkar hringingar og álag á verkstjóra.“
Heiðar Theódór · HeiðGuð Byggir

Fyrir Rún Solutions er samstarfið við HeiðGuð Byggir gott dæmi um það sem Tólspor snýst um: einfaldar og áreiðanlegar lausnir sem létta undir með fólki á gólfinu og skila sér beint í rekstrinum.

Viltu sjá Tólspor í verki?

Náðu betri yfirsýn yfir verkfærin þín eins og HeiðGuð Byggir. Hafðu samband og við sýnum þér hvernig Tólspor virkar.

Rún Solutions

Rún Solutions

Stafróf sköpunar

Sérsmíðaður hugbúnaður og ráðgjöf — einfaldar, áreiðanlegar og skilvirkar lausnir.

Fylgstu með

© 2026 Rún Solutions. Allur réttur áskilinn.